Félagsfundur 25. október 2023

Kæra félagsfólk.

Það verður fundur í Sléttunni á Sléttuvegi 21-23, á morgun, þann 25. október nk.  Fundur hefst kl. 19:30 og kostar 1.000 krónur inn.

Kristín Erlendsdóttir ætlar að sýna skurð á blokkum.  Þið eruð hvattar til að koma með saumaðar blokkir og áhöld til að prófa og læra þessa aðferð á eigin blokkum.

Það eru 4 blokkir sem þarf að koma með ef vill, stiku, mottu og skurðarhníf.
Stærð á bútum 5” x 5” miðja, og kantar 2 ½” ósaumað mál.
Koma með blokkirnar saumaðar og pressaðar.

Ásdís verður með myndasýningu frá sýningunni í Frakklandi og segir frá ferðinni.

Það væri frábært að koma með sinn bolla fyrir kaffið. 

Við minnum á að vera ekki með ilmefni á sér vegna óþols!

Kveðja Stjórnin.