Stjórn Íslenska bútasaumsfélagins boðar til framhaldsaðalfundar næsta miðvikudag, þann 6. september 2023 kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn í salnum Sléttan, að Sléttuvegi 21-23. Í pósti til allra félagsmanna sem sendur var 23. júní s.l. var óskað eftir: · Framboði til formanns · Framboðum til stjórnar · Framboðum í ritnefnd · Framboðum í sýninganefnd · Framboðum í fræðslunefnd · Framboðum í ferðanefnd · Framboðum í kaffinefnd Uppstillingarnefnd er enn að störfum og mun upplýsa um niðurstöður á fundinum. Við hvetjum félaga til að fjölmenna á fundinn! Kær kveðja, Stjórnin |