Félagsmenn Íslenska bútasaumsfélagsins geta tekið þátt í happdrætti á vegum European Quilt Association (EQA) þar sem dregið verður um 40 aðgangspassa að Carrefour Européen du Patchwork 2027 í Frakklandi.
Hver passi veitir einum einstaklingi aðgang að sýningunni alla fjóra dagana, 16.–19. september 2027. Verðmæti hvers passa er 40 evrur.
Helstu skilmálar happdrættisins:
- Dregið verður um 40 fjögurra daga aðgangspassa, þar af tvo fyrir hvert þátttökufélag.
- Hver félagsmaður má aðeins taka þátt einu sinni.
- Vinningshafar fá tilkynningu með tölvupósti á netfangið sem þeir skrá í þátttökuformið.
- Ef vinningur er ekki sóttur innan mánaðar frá tilkynningu fellur hann niður.
- Ekki er hægt að skipta passa fyrir peninga eða miða á sýningu næsta árs.
- Vinningshafi getur framselt passann til annars félagsmanns, að því tilskildu að skipuleggjendur séu látnir vita.
Hvernig tek ég þátt?
Skannaðu QR kóðann á meðfylgjandi mynd og fylltu út þátttökuformið.
Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér happdrættið og nýta þetta tækifæri til að heimsækja alþjóðlega bútasaumssýningu.
Nánari upplýsingar um sýninguna: www.patchwork-europe.eu


