Carrefour Européen du Patchwork 2027 – Alþjóðleg bútasaumssýning í Frakklandi

Dagana 16.–19. september 2027 verður alþjóðlega bútasaums- og textílsýningin Carrefour Européen du Patchwork haldin í Val d’Argent í Alsace-héraði í Frakklandi.

Þetta verður í 32. sinn sem sýningin er haldin. Viðburðurinn er vettvangur fyrir áhugafólk um bútasaum og textíllist, þar sem gefst tækifæri til að kynnast fjölbreyttum verkum og nýjum hugmyndum.

Íslenska bútasaumsfélagið vekur athygli félagsmanna á sýningunni og hvetur áhugasama til að kynna sér viðburðinn.

Dagsetning: 16.–19. september 2027
Staðsetning: Val d’Argent, Alsace, Frakklandi

Nánari upplýsingar má finna á opinberri vefsíðu sýningarinnar:

www.patchwork-europe.eu

Scroll to Top