Við viljum minna á félagsfundinn n.k. miðvikudag kl. 19:30 í Sléttunni, Sléttuvegi. Á fundinum ætlar klúbburinn Queen Diamonds að kynna sig og það verkefni sem verið er að vinna að í klúbbnum. Sagt verður frá tutlu góðgerðarverkefni félagsins og verða nokkrar slíkar til sýnis. Einnig verður sagt frá bútasaumssýningunni í Alsace í Frakklandi og verkefni EQA kynnt. Öllum velkomið að sýna og segja frá verkum. Aðgangseyrir er kr. 1.000,- Hlökkum til að sjá ykkur, kveðja stjórnin. |