Hér með er boðað til aðalfundar miðvikudaginn 24. apríl 2024 kl: 20:00. Sléttunni, Sléttuvegi 23, 103 Reykjavík.
Hér er dagskrá fundarins ásamt tillögum um lagabreytingar og skýringar á þeim.
Smellið hér til að sjá lagabreytingatillögur.
Smellið hér til að sjá skýringar með lagabreytingum.
Dagskrá fundar:
- Fundarsetning, kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar um störf á liðnu ári.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
- Tillaga um árgjald
- Skýrslur nefnda
- Lagabreytingar, enda hafi þær borist stjórn fyrir boðun aðalfundar.
- Kosning formanns
- Kosning meðstjórnenda
- Kosning varamanna
- Kosning tveggja skoðunarmanna
- Kosning í nefndir
- Önnur mál
- Lestur fundargerðar síðasta aðalfundar lesin upp.
Bestu kveðjur, stjórnin.