Jólasamvera miðvikudaginn 29. nóvember 2023
Síðasti fundur ársins verður jólafundur með pakkaleik, mat og skemmtiatriði. Við hvetjum sem flesta félaga til að mæta.
Það verður pakkaleikur hjá okkur og í pakkanum á að vera eitthvað tengt bútasaumi eða eitthvað handgert sem tengist bútasaum. Fundurinn verður haldinn að Sléttunni, Sléttuvegi og opnar húsið kl. 19:00. Borðhald hefst kl 19.30. Boðið verður upp á skemmtiatriði eftir mat. Gúllashsúpa verður fram borin með brauði og eitthvað sætt í eftirrétt. Verð er 3500 krónur. Ekki er posi á staðnum svo ekki gleyma að hafa með sér reiðufé.
Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku fyrir 25. nóvember með því að senda póst á asdis.finnsdottir@gmail.com eða formadur@butasaumur.is
Þeir sem eru nú þegar búnir að skrá sig á lista eru beðnir að staðfesta með pósti líka.