Dagana 11.–14. mars 2027 verður alþjóðlega bútasaumshátíðin International Patchwork Festival haldin í strandbænum Sitges á Spáni.
Hátíðin er stór viðburður fyrir áhugafólk um bútasaum og textíllist og býður upp á fjölbreyttar sýningar, námskeið, kynningar og leiðsögn um sýningar.
Á hátíðinni koma fram þekktir bútasaumslistamenn víðs vegar að úr heiminum. Þar verður einnig stórt sýningar- og sölusvæði með yfir 100 sýnendum, samkvæmt kynningarefni hátíðarinnar.
Tilvalið tækifæri fyrir bútasaumsáhugafólk til að sækja innblástur, kynna sér nýjungar og njóta þess sem alþjóðlegt bútasaumssamfélag hefur upp á að bjóða.
Nánari dagskrá verður kynnt þegar nær dregur.
Nánari upplýsingar: Opinber heimasíða hátíðarinnar

