Bleikt þema á félagsfundi

Á félagsfundinum miðvikudaginn 28. október verður bleikt þema og eru allir hvattir til að mæta í bleiku eða með eitthvað bleikt. Einnig væri mjög gaman að sjá bleik verkefni, t.d. teppi, dúka, töskur, púða, pottaleppa, nálapúða o.s.frv.

Ólöf Ólafsdóttir ætlar að koma til okkar og segja frá verkefni sínu Velferðarteppi Ólafar. Hún mun sýna myndir og tala um bútasauminn og parkinson.

Í vetur er fyrirhugað að hafa námskeið í ullarsaumi og námskeið í töskugerð. Námskeiðin verða kynnt á fundinum og áhugi kannaður.

Stjórnin vill einnig minna félagsfólk á að senda póst á netfangið formadur@butasaumur.is ef uppfæra þarf heimilisföng, netföng og símanúmer.

Fundurinn verður haldinn í salnum, Sléttuvegi 21-23 í Reykjavík. Happdrætti verður á sínum stað og heitt á könnunni.

Kær kveðja stjórnin.

Scroll to Top