Ýmislegt hefur verið að gerast á sviði bútasaums- og textíllistar í Evrópu síðustu vikur. Hér tökum við saman úrslit úr tveimur keppnum, lítum á þemu næsta árs og bendum á nýjan vef European Quilt Association – EQA.
Verðlaunahafar Carrefour European Quilt Show 2026
Alþjóðlega keppnin á Carrefour European Quilt Show 2026 hafði þemað Habitat og alls tóku 94 þátttakendur frá 21 landi þátt.
Aðalverðlaunin, Best of Show, hlaut Hwakyung Lee frá Suður-Kóreu fyrir verkið Living Light in the Forest.
Verkið fjallar um ljósið sem lifandi þátt í vistkerfi skógarins, þar sem form, rými og líf tengjast saman.
People’s Choice Award, sem gestir og þátttakendur í netkosningu völdu, hlaut Szilvia Kerékgyártó frá Ungverjalandi fyrir verkið Nature Takes Back What’s Its Own. Yfir 2.000 atkvæði bárust í kosningunni.
Fjöldi annarra verka hlaut jafnframt sérstök verðlaun frá samstarfsaðilum sýningarinnar.
Keppnin 2027 – Girl Power
Þema alþjóðlegu keppninnar árið 2027 verður Girl Power.
Þátttakendur eru hvattir til að túlka stöðu, styrk og áhrif kvenna í fortíð, nútíð og framtíð með bútasaums- og textíllist.
Verkin mega vera fígúratíf eða abstrakt og nálgast viðfangsefnið á margvíslegan hátt – meðal annars með hugmyndum um samstöðu, styrk, sköpun, sjálfstæði og þekkingarmiðlun milli kynslóða.
Skilafrestur: 15. maí 2027
Stærð verks: 80 × 120 cm
Nánari upplýsingar um keppnina má finna á vef Carrefour European Quilt Show.

Challenge 5-25 – ungt fólk og bútasaumur
Á Carrefour European Quilt Show voru einnig kynnt úrslit í Challenge 5-25, keppni fyrir unga þátttakendur á aldrinum 5–25 ára.
Þema ársins 2026 var Forests og 22 ungir listamenn komust í úrslit.
Sigurvegararnir í aldursflokkunum fjórum voru:
- 5–9 ára: Salomé Brandt, Frakklandi – Sunrise over the fir trees of Vaux-et-Chantegrue
- 10–13 ára: Olivia Mounet, Frakklandi – By Moonlight, the Mysterious Forest Lights Up
- 14–18 ára: Maksymilian Wasielak, Póllandi – Breathless
- 19–25 ára: Elisabeth Hennig, Þýskalandi – Together
Hver sigurvegari fékk bernette sew&go 3 saumavél frá BERNINA og allir 22 úrslitaþátttakendur fengu gjafir frá samstarfsaðilum verkefnisins.
Hluti af dagskránni var einnig sameiginleg textílvinnustofa þar sem ungu þátttakendurnir unnu saman að birkiskógi úr efni og þræði.
Challenge 5-25 árið 2027 – Let’s Travel!
Þema næsta árs verður Let’s Travel!
Ungu þátttakendunum er boðið að segja sögu af stað sem þeir þekkja, ferðalagi sem þeir hafa upplifað eða stað sem þá dreymir um að heimsækja.
Með efni, þræði, litum og áferð geta þeir túlkað landslag, fólk, tilfinningar og upplifanir sem tengjast ferðalögum.
Þetta gæti verið skemmtilegt tækifæri fyrir íslensk börn og ungt fólk sem hefur áhuga á bútasaumi og textíllist.

Nýr vefur EQA
European Quilt Association – EQA hefur opnað nýjan vef.
EQA er samstarf evrópskra bútasaumsfélaga og vinnur að því að efla tengsl, samstarf og sýnileika bútasaums- og textíllistar í Evrópu.
Á nýja vefnum má finna upplýsingar um samtökin, aðildarlöndin, verkefni og starfsemi EQA.
Nýr vefur EQA:
www.europeanquiltassociation.eu

