Kæra félagsfólk
Í haust óskaði Christalena Hughmanick eftir samstarfi við Íslenska bútasaumsfélagið í samfélagslegu bútasaumsverkefni sem hún var að hefja. Hún leitaði eftir sérfræðiþekkingu félagsfólks við að raða saman bútunum í eitt stórt teppi.
Stjórn félagsins tók vel í erindið og nú er komið að því að leggja okkar af mörkum. Helgina 10.–12. apríl heldur hún þriggja daga viðburð þar sem félagsfólk getur komið hvenær sem er og lagt verkefninu lið.
Ef einhverjir hafa tök á að koma með saumavélar, skurðmottur og hnífa væri það vel þegið og biður hún viðkomandi að vera í sambandi við sig.
Eftirfarandi texti er frá Christalenu:
Verið velkomin á Sjóminjasafnið í Reykjavík dagana 10.-12. apríl kl. 10-17. Þar býðst að taka þátt í að sauma saman samfélagslegt bútasaumsteppi með listakonunni Christalena Hughmanick og Íslenska bútasaumsfélaginu.
Undanfarna mánuði hafa íbúar Reykjavíkur saumað búta eftir eigin hönnun á vinnustofum í bókasöfnum víðsvegar um borgina úr endurnýttum rúmteppum. Á meðan við saumum saman búta af efni, spinnum við einnig samtöl og sögur um nærliggjandi hverfi okkar. Hvernig líður okkur? Hvaða breytingar viljum við sjá í umhverfi okkar? Þessi þriggja daga viðburður er hannaður í anda hefðbundinna „quilting bee“ samkoma, þar sem margir koma saman til að vinna að handverksverkefni hratt í félagslegu umhverfi. Þann 10.-12. apríl verða bútarnir saumaðir saman í stórt teppi sem verður sýnt á Sumardeginum fyrsta, 23. apríl, á Árbæjarsafni. Almenningur er velkominn að koma og fræðast um bútasaumsaðferðina og hitta fólk sem hefur lagt sitt af mörkum — einn saum í einu. Boðið verður upp á kaffi, te og kökur.
Verkefni er styrkt af Þróunarsjóði innflytjendamála.
Facebook viðburður: Saumum saman Ísland
Upplýsingar á vef Borgarsögusafns: Saumum saman Ísland
Vefsíða Christalenu: https://www.christalenahughmanick.com/
Vonandi sjá margir sér fært að mæta.
Kær kveðja stjórnin
