Saumadagur 17. janúar

Laugardaginn 17. janúar verður saumadagur hjá félaginu kl. 10 – 16. Allir velkomnir, hvort sem komið er með handsaum eða vélsaum. Verðum í salnum, Sléttuvegi 21, 103 Reykjavík.

Eins og áður þá er fyrirkomulagið þannig að hver og einn kemur með sitt nesti fyrir daginn. Kaffi og te verður á staðnum sem og straujárn og straubretti.

Verð er kr. 2.500.- og lágmarksþátttaka er 20 manns til að ná kostnaði fyrir salarleigu.

Vinsamlegast svarið til með mætingu á Facebooksíðu félagsins (Atburður / Event: Saumadagur 17. janúar).

Kær kveðja stjórnin.

Scroll to Top