Jólafundurinn okkar hefst kl. 20:00 í salnum á Sléttuvegi 21 – 23, Reykjavík. Húsið opnar kl.19:30.
Á dagskrá fundarins er kynning á væntanlegri ferð til Alsace í Frakklandi næsta haust, fyrirlestur, myndasýning og jólapakkaleikurinn verður á sínum stað. Beðið er um að innihald pakkans tengist bútasaumi á einhvern hátt eða eitthvað handgert sem tengist bútasaumi. Viðmið er að verð innihaldsins er ca kr. 3.000.-
Það verður kaffi, konfekt, smákökur, brauðtertur og marsipantertur í fínni kantinum.
Verð fundarins er kr. 4.000.- Hægt er að greiða með reiðufé eða millifærslu.
Skráning fer fram á facebook síðu félagsins (viðburðurinn Jólafundur) eða með því að svara þessum pósti sem berst til formanns. Skráningarfrestur er til hádegis miðvikudags 27. nóvember.
Hlökkum til að sjá ykkur,
hátíðarkveðja stjórnin.