Skemmtileg samkeppni á netinu á vegum EQ
EUROPEAN QUILT ASSOCIATION
EQA rafræn áskorun 2021
“Skipti á myndum”
Tilgangur EQA er að styðja við bútasaum, efla menningu og draga úr tungamálaörðugleikum þvert á landamæri. Þetta verkefni á að hvetja þátttakendur innan EQA til að hafa samband og vinna saman að ákveðnu verkefni.
|
REGLUR
- Skráðu þátttöku þína með því að senda fulltrúa EQA hér á landi meðfylgjandi þátttökublað ásamt ljósmynd af því sem þú vilt túlka í verkinu, annaðhvort með tölvupósti eða í venjulegum pósti. Þetta þarf að gerast fyrir 31. desember 2020. Netfangið er: formadur@fingurbjorg.is
- Þú færð samstarfsaðila frá einhverju landi í Evrópu innan EQA. Myndin þín verður rifin í tvennt og vinstri helmingurinn verður sendur til samstarfsaðilans. Þú munt einnig fá vinstri helming myndar einhvers annars aðila sendan til þín eigi síðar en 31. janúar 2021.
- Þú átt að búa til tvö lítil verk, stærð hvors verks er 20×40 cm (annað verkið er túlkun þín á hægri helmingi þinnar eigin myndar og hinn helmingurinn er túlkun þín á vinstri helmingi samsstarfsaðilans).
- Útlit: Portrait
- Einfalt
- Binding: Frjáls en á að passa við verkið og fylgja þarf uppgefinni stærð (20×40). (Má ekki vera stærri).
- Nota má hvaða aðferð sem er, en verkið verður að vera í þremur lögum, þ.e. framhlið, vatt og bak.
- Ljósmynd af tilbúnum verkum skal senda til fulltrúa EQA á Íslandi, annaðhvort með tölvupósti eða í pósti eigi síðar en 30. júní 2021. Vinsamlega skrifið ca. 20 orða lýsingu (á ensku) á verkinu og reynsluna af þessu verkefni.
- Öll verk sem skila sér verða birt á Facebooksíðu EQA og munu verða þar það sem eftir lifir árs 2021. Öll verk sem hafa verið unnin (pöruð) saman verða birt saman á síðunni ásamt ljósmyndum og lýsingu höfundar á
- Allir félagar í Íslenska bútasaumsfélaginu mega taka þátt og það er ekkert þátttökugjald. Verkin eru ekki til sölu. (Verkin eru ekki dæmd).
- Vinsamlega ekki sýna neinar myndir af verkunum á opinberum miðlum fyrr en þær hafa verið birtar á Facebooksíðu EQA. Myndir af verkunum kunna að verða notaðar af EQA til kynningar.
- Með því að taka þátt í þessu verkefni gerir þú þér grein fyrir að þátttakendur eru mismunandi og hafa mismikla reynslu af bútasaumi. Verðlaunin fyrir að taka þátt er reynslan af að tengjast við aðra bútasaumara í Evrópu.
EQA Rafræn áskorun 2021
“Skipti á myndum”
|
Þátttökublað
Nafn…………………………………………………………. Sími/GSM…………….
Heimilisfang………………………………………………. Netfang……………….
Nafn verksins á íslensku: ………………………………………………………………
Nafn verksins á ensku: …………………………………………………………………
Mynd fylgir ☐
ÉG HEF LESIÐ REGLURNAR OG SAMÞYKKI ÞÆR.
Undirritun:……………………………………………. DAGSETNING: …………
Vinsamlega sendið þátttökublað ásamt mynd af verkinu í síðasta lagi 31. desember til
Margrétar Óskarsdóttur, fulltrúa EQA á Íslandi. Netfang: formadur@butasaumur.is
Upphaflega hugmyndin. Myndir birtar með leyfi Lippetal-Quilter, Germany, and Gone to Pieces, Englandi.