Einn stærsti textíl- og bútasaumsviðburður Evrópu, Carrefour Européen du Patchwork, fer fram í Val d’Argent í Alsace í Frakklandi dagana 17.–20. september 2026.
Sýningin sameinar hefðbundna, nútímalega og framsækna bútasaums- og textíllist frá listamönnum alls staðar að úr heiminum. Frá og með 2026 verður ekki lengur sérstakt gestaland í fókus. Markmiðið er að endurspegla alþjóðlega textílsenu án landamæra.
Á dagskrá verða meðal annars:
- fjölbreyttar sýningar á bútasaums- og textíllist
- vinnustofur og fyrirlestrar
- alþjóðleg bútasaumskeppni með þemanu HABITAT
- sérstök keppni fyrir börn og ungmenni (5–25 ára)
Nánari upplýsingar og reglur eru á vef sýningarinnar: https://www.patchwork-europe.eu

Happdrætti fyrir EQA meðlimi – frír aðgangur að sýningunni
EQA (European Quilt Association) býður félagsmönnum sínum að taka þátt í happdrætti þar sem dregnir verða út 40 ókeypis sýningarmiðar (unlimited exhibit pass) á Carrefour European Quilt Show 2026 í Frakklandi.
Til að taka þátt þarf einfaldlega að skanna QR kóðann hér að neðan og fylla út skráningarform.
Athugið að happdrættið er eingöngu ætlað EQA meðlimum og þátttaka er takmörkuð við eina skráningu á hvern félagsmann.
(Sjá nánari skilmála í upplýsingum EQA.)

