Félagsfundur miðvikudaginn 30. september

Fyrsti félagsfundur starfsársins verður miðvikudaginn 30. september kl. 19:30 í salnum Sléttuvegi 21-23, Reykjavík.

Christalena Hughmanick ætlar að koma með og sýna okkur listaverkið sitt „Saumum saman Ísland, let’s sew Iceland together“ sem er núna til sýnis á Borgarbókasafninu í Spönginni til 26. september. Bútasaumsteppið er félagslegt listaverkefni þar sem yfir 100 manns tóku þátt í að sauma saman á einu ári ýmist á Borgarbókasafninu eða Sjóminjasafninu í Reykjavík. Í apríl síðastliðnum kom Íslenska bútasaumsfélagið að samsetningu blokkanna í heildarverkinu.

Auk þessa verður happdrættið á sínum stað og félagsfólk er velkomið að koma með og sýna bútasaumsverk.

Það verður gaman að sjá ykkur á fundinum,
kær kveðja,
f.h. stjórnar
Hugrún Björk

Scroll to Top