Námskeið í pappírssaumi og saumadagur

Laugardaginn 14. mars er saumadagur hjá félaginu og eru allir velkomnir með vélsaum eða handsaum. Við verðum í salnum Sléttunni, Sléttuvegi 21 í Reykjavík. Skráning er á Facebooksíðu félagsins. Smellið hér: Saumadagur

Á saumadeginum verður námskeið fyrir áhugasama í pappírssaumi (e. paperpiecing) og þarf að skrá sig sérstaklega á námskeiðið á Facebooksíðunni. Smellið hér: Námskeið
Upplýsingar um efnisgjald og hvað þarf að koma með er á viðburði námskeiðsins.

Að lokum viljum við vekja athygli á að embætti varaformanns og embætti meðstjórnanda eru laus í stjórninni frá og með næsta aðalfundi. Áhugasamir hafi samband við stjórn eða senda póst á formadur@butasaumur.is

Scroll to Top