Carrefour European Quilt Show 2026 – helstu atriði

Einn stærsti textíl- og bútasaumsviðburður Evrópu, Carrefour Européen du Patchwork, fer fram í Val d’Argent í Alsace í Frakklandi dagana 17.–20. september 2026.

Sýningin sameinar hefðbundna, nútímalega og framsækna bútasaums- og textíllist frá listamönnum alls staðar að úr heiminum. Frá og með 2026 verður ekki lengur sérstakt gestaland í fókus. Markmiðið er að endurspegla alþjóðlega textílsenu án landamæra.

Á dagskrá verða meðal annars:

  • fjölbreyttar sýningar á bútasaums- og textíllist
  • vinnustofur og fyrirlestrar
  • alþjóðleg bútasaumskeppni með þemanu HABITAT
  • sérstök keppni fyrir börn og ungmenni (5–25 ára)

Nánari upplýsingar og reglur eru á vef sýningarinnar: https://www.patchwork-europe.eu

Scroll to Top