Við viljum minna félagsmenn á saumadaginn n.k. laugardag, 7. desember. Hann verður haldinn í salnum, Sléttuvegi 23, kl. 10:00 – 16:00.
Líkt og áður þá kemur hver og einn með sín verk og tæki, hvort sem unnið er á saumavél eða í höndunum.
Við fáum heimsókn frá fyrirtækinu Nál og Tvinna.
Vonast er til að næg þátttaka náist en lágmarksfjöldi er 20 til að dagurinn standi undir sér rekstrarlega séð.
Verð er kr. 2.000.-
Skráning er á Facebook síðu félagsins “Íslenska bútasaumsfélagið”. Þar er kominn viðburður “Saumadagur” þar sem mæting er staðfest með því að svara “mæti”.
Kaffi og te verður á staðnum en hver og einn kemur með sitt nesti fyrir daginn.
Kær kveðja, stjórnin.