Jólasamvera miðvikudaginn 27. nóvember 2024

Jólafundurinn okkar hefst kl. 20:00 í salnum á Sléttuvegi 21 – 23, Reykjavík. Húsið opnar kl.19:30.
 
Á dagskrá fundarins er kynning á væntanlegri ferð til Alsace í Frakklandi næsta haust, fyrirlestur, myndasýning og jólapakkaleikurinn verður á sínum stað. Beðið er um að innihald pakkans tengist bútasaumi á einhvern hátt eða eitthvað handgert sem tengist bútasaumi. Viðmið er að verð innihaldsins er ca kr. 3.000.-

Það verður kaffi, konfekt, smákökur, brauðtertur og marsipantertur í fínni kantinum.

Verð fundarins er kr. 4.000.- Hægt er að greiða með reiðufé eða millifærslu.

Skráning fer fram á facebook síðu félagsins (viðburðurinn Jólafundur) eða með því að svara þessum pósti sem berst til formanns. Skráningarfrestur er til hádegis miðvikudags 27. nóvember.
 
Hlökkum til að sjá ykkur,
hátíðarkveðja stjórnin.

Scroll to Top