Ágætu bútasaumskonur.
Nú stendur yfir skráning á haustfagnaðinn, Með sól í hjarta á Hótel Sögu. Nú þegar eru yfir 60 konur búnar að boða komu sína. Við viljum hvetja ykkur til að hafa samband við klúbbsystur ykkar eða vinkonur og tilkynna komur ykkar fyrir 6. september.
Miða og borðapantanir hjá Svölu og Sirrý.
Tekið verður á móti gestum með fordrykknum Sól í hjarta. Matseðillinn er glæsilegur “laxarúlla í forrétt, lambafile með rótargrænmeti, kartöfluturni og kryddjurtasósu í aðalrétt og í eftirrétt er súkkulaðiterta með berjum og ferskum rjóma”. Atriði frá ykkur eru vel þegin en við þurfum að vita um þau fyrirfram til þess að geta raðað dagskráni. Viðurkenningar verða veittar, dregið í lukkumiðahappdrætti þar sem stórglæsilegt bútasaumsteppi er í vinning. Þær sem ekki komast á sýninguna í Perlunni þar sem seldir verða lukkumiðar geta haft sent Svölu upplýsingar um nafn, heimilisfang og síma kaupanda lukkumiðans og hann verður fylltur út og settur í pottinn. Síðan leggið þið inná reikning félagsins 500 kr. fyrir hvern keyptan miða og látið koma fram í skýringu nafn og lukkumiði. Reikningur félagsins er 537-26-503980 kt. 541200-3980.
Miðaverð á haustfagnaðinn er 7.900 kr. þarf að greiða fyrir 6. september og fer þannig fram að þið sendið okkur skráningu í netpósti ásamt nafni og ef þið fylgið einhverjum klúbbi, greiðið í banka og setjið í skýringar SAGA og nafn ykkar. Það er von okkar sem stöndum að þessu haustfagnaði að fá skjót viðbrögð þar sem við rennum blint í fjölda gestafjölda. Tilvalið er fyrir klúbba út á landi að sameina í einum ferðapakka tvær bútasaumssýningar og klára svo daginn með “galadinner” og skemmtun. Það er ekki nauðsynlegt að vera í félaginu okkar hann til að mæta á haustfagnaðinn hann er opin öllu handverksfólki.
Klúbbar og einstaklingar eru hvattir til að skreyta borðin hjá sér og svo verður veitt viðurkenning fyrir frumlegasta borðið. Við vitum að þegar svo margt handverksfólk er saman komið getur verið gaman að sjá hugmyndarflug annarra. (Það verða stór kringlótt borð með ljósum dúkum í salnum).
Með bestu kveðjum, nefndin.

RSS