Listakonan Gunnella býður áhugafólki um handverk til samstarfs

Á félagsfundi Íslenska bútasaumsfélagsins í vetur var tilkynnt að listakonan Gunnella hefði áhuga á að bjóða félögum félagsins til að vinna með sér að sameiginlegri sýningu.  Þar yrðu sýnd málverk eftir hana og bútasaumsmyndir sem yrðu eftir verkum hennar.   Pistill Gunnellu sem fluttur var á fundinum má finna hér.  Áhugasömum er bent á að skrifa Gunnellu eða hringja í síma 564-1592.   Einnig mun Borghildur skrá niður þátttöku og svara fyrirspurnum.

Skrifa athugasemd