Prjónakaffið byrjar aftur fyrsta þriðjudag í september, 7 sept. klukkan hálfátta að kvöldi. Prjónakaffið verður núna á hverjum þriðjudegi í stað hálfsmánaðarlega áður, en 14 september sér hún PrjónaKella um prjónakaffið og sýnir það sem hún hefur á boðstólnum. Hún mun sjá um prjónakaffið einu sinni í mánuði í vetur. Boðið verður upp á kaffi og te og kannski eitthvað með því. Verið velkomnar prjónakallar og prjónakellur í Guðríðarkirkju!

RSS