Handverk og hönnun verður í Ráðhúsi Reykjavíkur 28. október til 3 nóvember 2010. Sjá nánar á heimasíðu Handverks og hönnunar.
Innlendir viðburðir
Félagsfundur 27. október 2010, kl. 20.00
- Sagt frá sýningum sumarsins
- Frágangur á teppum – Halldóra Þormóðsdóttir og Hrafnhildur Svavarsdóttir segja frá
- Vattstunga í vél – konur sem taka að sér að vatt-stinga teppi kynna starfsemi sína
- Ræmuhappdrætti – félagar komi með 2 1/2” ræmur í bláu, í breidd efnisins, merktar með nafni
- Sýnt og sagt frá
Fundurinn verður haldinn í Safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju, kl. 20.00 -22.00, mætum stundvíslega. Aðgangseyrir kr. 500.
Litunarnámskeið hjá Sigrúnu Shanko
Textíllistakonan Sigrún Lára Shanko mun halda litunarnámskeið 12 og 13 október næstkomandi.
Bútur við bút
Á haustfagnaði handverksfólks Með sól í hjarta, sem haldinn var á Hótel Sögu, 18. september s.l. kom kátur hópur kvenna upp á svið og söng Bútur við Bút. Textinn er eftir Benedikt Jóhannesson, en hann er sunginn við lagið Ó nema ég.
6. október Handverkskaffi í Gerðubergi
Minnum á Handsverkskaffi í Gerðubergi, miðvikudagskvöldið 6 október kl. 20.00 en þá mun Björn Finnsson kenna gestum skrauthnúta.
Félagsfundur 29. september 2010, kl. 20.00
- Kynning á samkeppni framundan – EQA og á aðalfundi 2012. Sjá nánar tilkynningu frá 8. september.
- Klúbbakynning – Spólurnar á Patreksfirði
- Félagið og starfsemi þess, umræður
- Örnámskeið fyrir byrjendur. Áhugasamir komi með nokkra búta, saumavél, framlengingarsnúru, mottu og stiku (þeir sem eiga) og annað til sauma
- Óskað er eftir að félagar komi með litríka búta sem má nota í gerð Hetjuteppa (sjá grein um Hetjuteppin í síðasta Fréttablaðið félagsins)
- Happdrætti
- Sýnt og sagt frá
Fundurinn er haldin í Safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju, kl. 20.00 til 22.00, mætum stundvíslega. Aðgangseyrir kr. 500.
Viðtal við Margréti Ósk Árnadóttur
Fréttablaðið birti í gær viðtal við Margréti Ósk Árnadóttur en lesa má afrit af greininni hér.
“Color Connections” í Ráðhúsi Reykjavíkur 14. – 19. september
Íslenska bútasaumsfélagið opnar í dag samsýningu Evrópskra bútasaumasfélaga í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sjá nánar meðfylgjandi boðskort.
Sýningin er opin vika daga frá kl.8.00. til 19.00. Helgaropnun kl. 12.00 – 18.00.
Afmælissýning í Perlunni 10-18 september
Afmælissýning Íslenska bútasaumsfélagsins var opnuð með viðhöfn í Perlunni í gær. Fjölmargir gestir heiðruðu félagið með komu sinni og er félagið stollt af því að sýningin vakti hrifningu. Anna Margrét Árnadóttir, formaður afmælisnefndar, setti hátíðina. Yngstu þátttakendurnir, Andrea Eiríksdóttir og Sonja Orradóttir, fengu viðurkenningar. Sömuleiðis Margrét Árnadóttir sem hafðu yfirumsjón með saumaskap á teppum sem voru saumuð í tilefni sýningarinnar. Verðlaun voru afhent í samkeppninni um Tækifæriskort, og má sjá myndir af Tækifæriskortunum hér. Að lokum var Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein, afhent teppi til styrktar félaginu.
Opnunartími sýninga, setustofu og saumastúdíós er frá 10.00 til 18.00 alla sýningardagana.
Tækifæriskort
Í tilefni að 10 ára afmæli Íslenska bútasaumsfélagsins var efnt til samkeppni um gerð Tækifæriskorta að stærðinni A4 og voru þátttakendur bæði innlendir og Evrópskir listamenn, myndir af kortunum má sjá hér . Lesa meira »




RSS