21. október 2011

Rafræna tímaritið Quilt around the World stendur fyrir alþjóðlegum blokkaskiptum sem eru opin öllum. Þátttakendum verður raðað í 12 manna hópa og hver aðili þarf að skila inn 12 blokkum fyrir 31. mars 2012. Greiða þarf þátttökugjald vegna póstburðargjalda.
Flokkað undir: Erlendir viðburðir •
Engin athugasemd »
19. ágúst 2011
Umsóknarfrestur fyrir “European Art Quilts VII” er í mars 2012. Valið er úr umsækjendum en nánar upplýsingar finna á heimsíðunni hér að ofan. Fram til þessa hafa tvær íslenskar listakonur tekið þátt í þessari samsýningu Evróskra listamanna.
Flokkað undir: Erlendir viðburðir •
Athugasemdir3
17. ágúst 2011
Home of Jolanda efnir til samkeppni um hefðbundin bútasaumsverk með þemanu rauður. Skrá verður þátttöku fyrir 6. september næstkomandi og greiða 5 Evru þátttökugjald. Upplýsingar um þátttöku má finna hér. Verkin verða sýnd 2-14 október í Þýskalandi.
Flokkað undir: Erlendir viðburðir •
Engin athugasemd »
17. júlí 2011
Skissubókar verkefnið er farandsýning sem er sköpuð af listamönnum eins og þér! Þátttaka er opin öllum en skrá verður þátttöku fyrir 31. október, við skráningu þarf að velja eitt þema af 40 mögulegum. Skráningargjald er 28 USD og þá færðu senda tóma skissubók. Þegar verkefninu lýkur þarf að senda bókina til baka fyrir 31. janúar 2012. Árið 2012 verður efnt til farandsýningar með innsendum skissubókum en bækurnar verða síðan varðveitar af safninu Brooklyn Art Library. Óski þátttakendur eftir verður skissubókin skönnuð inn og verður síðar aðgengileg á vefnum gegn 20 USD greiðslu.
Flokkað undir: Erlendir viðburðir, Innlendir viðburðir •
Engin athugasemd »
17. júlí 2011
Hér er birt yfirlit yfir nokkra bútasaumshátíðir í Evrópu.
Bretland: Festival of Quilts, 11-14 ágúst 2011.
Þýskaland: 30 ára afmælissýning Þýska bútasaumsfélagins 9-14 september 2011. 250 verk með þemanu loftslag verða sýnd á sýningunni.
Frakkland: “European Patchwork Meeting” 15-18 september 2011.
Belgía: “National Quilt Happening” 13-16 oktober 2011 er haldið árlega á vegum Belgíska bútasaumsfélagsins.
Austurríki: “Quiltfest” 21-23 október 2011.
Flokkað undir: Erlendir viðburðir •
Engin athugasemd »
17. júlí 2011
Fimmti Evrópski bútasaums þríæringurinn verður haldin í Heildelberg 2012. Að venju er efnt til samkeppni sem félagsmönnum stendur til boða að taka þátt í. Upplýsingar um þátttökureglur eru hér en keppnin er haldin að á vegum Textilsammlung Max Berk, Kurpfalzisches Museum en heimasíða safnsins er hér.
Flokkað undir: Erlendir viðburðir •
Engin athugasemd »
20. júní 2011
Í tengslum við Verona Textíl sýningu 8 mars 2012 er efnt til alþjóðlegrar samkeppni með þemanu “Tosca” eftir samnefndri óperu. Nánari upplýsingar má finna hér.
Flokkað undir: Erlendir viðburðir •
Engin athugasemd »
24. maí 2011
IT ferðir standa fyrir bútasaumsferð til Minneapolis n.k. september. Nánar upplýsingar um ferðatilhögun og verð má finna hér.
Flokkað undir: Erlendir viðburðir, Ýmislegt •
Engin athugasemd »
17. maí 2011
IT ferðir standa fyrir bútasaumsferð til Minneapolis n.k. september. Tilkynningu frá IT ferðum má lesa hér. Einnig má lesa um ferðatilhögun hér.
Flokkað undir: Erlendir viðburðir, Ýmislegt •
Engin athugasemd »