Námskeið, fræðsla
Að búa til samfellt skáband
Á félagsfundinum 23. febrúar var haldið ör-námskeið í hvernig búa má til samfellt skáband. Hér má sjá leiðbeiningarnar sem sýna aðferðina.
Bútasaumsnámskeið fyrir byrjendur – febrúar 2011
Næsta byrjendanámskeið á vegum Íslenska bútasaumsfélagsins verður haldið helgina 5. og 6. febrúar í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík. Námskeiðið er sérsniðið fyrir þá sem vilja læra réttu handbrögðin frá grunni og ljúka við alla verkþætti á námskeiðinu. Það er opið öllum sem áhuga hafa en félagar í Íslenska bútasaumsfélaginu fá 10% afslátt af námskeiðsgjaldinu. Mynd af verkefninu ásamt nánari upplýsingum má finna hér.
Bútasaumshátíðin “Festival of Quilts”
Bútasaumshátíðin “Festival of Quilts” verður haldin 19. – 22. ágúst 2010. Meðal annars verður sýning valdra listamanna á vegum “European Art Quilt” og eiga íslendingar fulltrúa í hópi sýnenda.



RSS