Afmælishátíð 2010

Bútur við bút

Á haustfagnaði handverksfólks Með sól í hjarta, sem haldinn var á Hótel Sögu, 18. september s.l. kom kátur hópur kvenna upp á svið og söng Bútur við Bút. Textinn er eftir Benedikt Jóhannesson, en hann er sunginn við lagið Ó nema ég.


Viðtal við Margréti Ósk Árnadóttur

Fréttablaðið birti í gær viðtal við Margréti Ósk Árnadóttur en lesa má afrit af greininni hér.


“Color Connections” í Ráðhúsi Reykjavíkur 14. – 19. september

Íslenska bútasaumsfélagið opnar í dag samsýningu Evrópskra bútasaumasfélaga í Ráðhúsi Reykjavíkur.   Sjá nánar meðfylgjandi boðskort.

Sýningin er opin vika daga frá kl.8.00. til 19.00.  Helgaropnun kl. 12.00 – 18.00.


Afmælissýning í Perlunni 10-18 september

Afmælissýning Íslenska bútasaumsfélagsins var opnuð með viðhöfn í Perlunni í gær.  Fjölmargir gestir heiðruðu félagið með komu sinni og er félagið stollt af því að sýningin vakti hrifningu.  Anna Margrét Árnadóttir, formaður afmælisnefndar, setti hátíðina. Yngstu þátttakendurnir, Andrea Eiríksdóttir og Sonja Orradóttir, fengu viðurkenningar.  Sömuleiðis Margrét Árnadóttir sem hafðu yfirumsjón með saumaskap á teppum sem voru saumuð í tilefni sýningarinnar.  Verðlaun voru afhent í samkeppninni um Tækifæriskort, og má sjá myndir af Tækifæriskortunum hér.  Að lokum var Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein, afhent teppi til styrktar félaginu.

Opnunartími sýninga, setustofu og saumastúdíós er frá 10.00 til 18.00 alla sýningardagana.


Tækifæriskort

Í tilefni að 10 ára afmæli Íslenska bútasaumsfélagsins var efnt til samkeppni um gerð Tækifæriskorta að stærðinni A4 og voru þátttakendur bæði innlendir og Evrópskir listamenn, myndir af kortunum má sjá hér . Lesa meira »


Afmælishátíðin í Kastljósi kvöldsins

Afmælisnefndin hefur verið dugleg að kynna afmælishátíð félagsins í fjölmiðlum.   Í kvöld birtist viðtal við Önnu Margréti Árnadóttur formann afmælisnefndarinnar í Kastljósi.


Haustfagnaður 18. september – Með sól í hjarta

Ágætu bútasaumskonur.

Nú stendur yfir skráning á haustfagnaðinn,  Með sól í hjarta  á Hótel Sögu.    Nú þegar eru yfir 60 konur búnar að boða komu sína.  Við viljum hvetja ykkur til að hafa samband við klúbbsystur ykkar eða vinkonur og tilkynna komur ykkar fyrir 6. september

Miða og borðapantanir hjá  Svölu og SirrýLesa meira »


Afmælishátíð Íslenska bútasaumsfélagsins

Nú styttist í opnun sýningar félagsins í Perlunni þann 10. september næstkomandi, Bút fyrir bút í 30 ár og Tækifæriskort.    Fjórum dögum síðar,  eða 14. september opnum við aðra sýningu, Color Connections  í Ráðhúsi Reykjavík.

Einstakt tækifæri til þess að skoða  fjölbreytt úrval bútasaumsverka, sjá nánar á meðfylgjandi boðskorti.


Afmælishátíð 10. – 19. september

Í tilefni af 10 ára afmæli félagsins verður fjölbreytt dagskrá daganna 10-19 september.

  • Bút fyrir bút í þrjátíu ár er sýning í Perlunni á völdum bútasaumsverkum sem er ætlað að gefa hin klassísku viðfangsefni í bútasaumi síðustu þrjátíu ára.
  • Sýning á verkum sem bárust í samkeppni félagsins, Tækisfærikort í Perlunni.
  • Litir farandsýning Evrópskra bútasaumsfélaga verður opin í Ráðhúsi Reykjavíkur 14 til 19 september.

Með kveðju,
Borghildur